Enski boltinn

United ekki gert samning við Mourinho

Anton Ingi Leifsson skrifar
Nei, enginn samningur hefur verið gerður.
Nei, enginn samningur hefur verið gerður. vísir/getty
Manchester United hefur ekki gert neinn samning við Jose Mourinho um að hann taki við liðinu í sumar. Þetta herma heimildir Sky Sports.

Í vikunni greindu ítalskir miðlar um að Mourinho væri einungis nokkrum klukkutímum frá því að taka við starfinu af Louis van Gaal á Old Trafford.

Sky Sports segir að það sé tóm þvæla, en en hinn 64 ára gamli Hollendingur, Louis van Gaal, á eitt ár eftir af samningi sínum við United. Flestir vilja hann þó burt úr þjálfarastólnum í sumar.

United komst ekki í gegnum riðlakpepni Meistaradeildarinnar, var slegið út úr Evrópudeildinni af Liverpool og er í erfiðri stöðu að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

Mourinho er talinn vilja fara þjálfa aftur, en þessi 53 ára gamli Portúgali var rekinn frá Chelsea í desember á síðasta ári. Hann hefur einnig verið orðaður við PSG og Roma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×