Enski boltinn

Guardiola fer með City í Meistaradeildina

Kelechi fagnar.
Kelechi fagnar. vísir/getty
Manchester City er á leið í Meistaradeildina á næstu leiktíð eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Gylfa lausa Swansea-menn.

Kelechi Iheanacho kom City yfir á fimmtu mínútu, en Andre Ayew jafnaði metin rétt fyrir hlé og þar við sat.

City er því með þriggja stiga forskot og tólf mörkum betri markahlutfall á United þegar United á leik eftir.

Swansea endar í tólfta sætinu, en Gylfi spilaði ekki í dag vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×