Enski boltinn

Belgarnir sáu um að skora á Anfield | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Chelsea fagna Eden Hazard sem skoraði mark Lundúnaliðsins.
Leikmenn Chelsea fagna Eden Hazard sem skoraði mark Lundúnaliðsins. vísir/getty
Liverpool og Chelsea skildu jöfn, 1-1, í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Belgísku landsliðsmennirnir Eden Hazard og Christian Benteke skoruðu mörkin á Anfield í kvöld.

Hazard kom Chelsea yfir með fallegu marki á 32. mínútu en Benteke jafnaði metin á annarri mínútu í uppbótartíma eftir mistök Asmirs Begovic í marki Chelsea.

Liverpool er í 8. sæti deildarinnar með 59 stig, 10 stigum meira en Chelsea sem er í sætinu fyrir neðan.

Liverpool sækir West Brom heim í lokaumferðinni á sunnudaginn á meðan Chelsea fær Englandsmeistara Leicester City í heimsókn.

Liverpool 0-1 Chelsea



Fleiri fréttir

Sjá meira


×