Fótbolti

Bayern keypti Hummels og Sanches

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mats Hummels.
Mats Hummels. vísir/getty
Það var nóg að gera á skrifstofu Bayern München í dag er félagið gekk frá kaupum á tveimur afar sterkum leikmönnum.

Mats Hummels, fyrirliði Dortmund, er á leið til erkifjendanna og hefur skrifað undir fimm ára samning. Kaupverð leikmannsins er ekki gefið upp.

Hummels tilkynnti á dögunum að hann væri búinn að ákveða að fara til Bayern. Þá var félagið ekki búið að gera tilboð í hann. Það er nú aftur á móti allt nema læknisskoðun frágengin núna.

Bayern keypti einnig Renato Sanches frá Benfica á 27,5 milljónir punda. Þetta er mikill skellur fyrir Man. Utd sem ætlaði að reyna að kaupa þennan 18 ára gamla strák.

Sanches er einnig búinn að skrifa undir fimm ára samning við þýsku meistarana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×