Fótbolti

Brasilíumenn ráku Dunga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það kom nákvæmlega engum á óvart þegar Knattspyrnusamband Brasilíu tilkynnti að búið væri að reka landsliðsþjálfarann, Carlos Dunga.

Brasilía komst ekki upp úr riðli sínum á Copa America og þá voru örlög Dunga ráðin.

Dunga er goðsögn í Brasilíu og var fyrirliði landsliðsins sem vann HM árið 1994.

Hann var ráðinn landsliðsþjálfari í annað sinn fyrir tveim árum síðan. Áður stýrði hann liðinu frá 2006 til 2010.

Þjálfari Corinthians, Tite, er talinn vera líklegur artaki Dunga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×