Ein súpersókn og Kólumbía tók bronsið | Sjáðu sigurmarkið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2016 11:00 Carlos Bacca fagnar sigurmarki sínu. Vísir/Getty
Kólumbíumenn tryggðu sér bronsverðlaunin í Ameríkukeppninni eftir 1-0 sigur á Bandaríkjamönnum í leiknum um þriðja sætið í nótt. Bandaríska liðið stóð sig mun betur en í 4-0 tapi á móti Argentínu í undanúrslitunum eða í 2-0 tapi í fyrri leik þjóðanna í riðlakeppninni. Carlos Bacca, leikmaður AC Milan á Ítalíu, skoraði eina mark leiksins á 31. mínútu þegar hann batt endahnútinn á frábæra sókn kólumbíska liðsins. Juan Cuadrado fékk boltann út á kanti, sendi hann á James fyrir framan teiginn sem lyfti honum á Santiago Arias sem hafði stungið sér inn á vítateiginn. Santiago Arias skallaði boltann framhjá markverðinum og Carlos Bacca ýtti honum inn fyrir línuna. Frábær sókn og hún nægði til þess að tryggja Kólumbíumönnum bronsið og besta árangur liðsins í Ameríkukeppninni frá því að Kólumbía vann titilinn á heimavelli árið 2001. Þetta var líka langþráð mark enda náðu Kólumbíumenn ekki að skora í átta liða úrslitunum eða undanúrslitunum. Þegar Carlos Bacca kom boltanum yfir í marklínuna þá var kólumbíska liðið ekki búið að skora í 228 mínútur í keppninni. Bandaríkjamenn fengu vissulega færin til að þess að jafna metin. David Ospina varði frábæra aukaspyrnu frá Clint Dempsey í upphafi seinni hálfleik og Bobby Wood var líka nálægt því að skora. Í uppbótartíma fóru tvö rauð spjöld á loft; eitt á hvort lið, en Michael Orozco var rekinn af velli í uppbótartíma eftir að hafa fengið fyrra gula spjaldið sitt á 88. mínútu. Santiago Arias fékk svo gul spjöld í uppbótartíma hjá Kólumbíu og fór því einnig snemma í sturtu. Það er hægt að sjá þessa súpersókn Kólumbíumanna sem færði þeim bronsið hér fyrir neðan.Úrslitaleikur Argentínu og Síle fer fram í kvöld og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst á miðnætti.Sigurmark Carlos Bacca
Fótbolti Mest lesið Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Enski boltinn Allt jafnt á Ásvöllum Handbolti Aron Dagur í Kópavoginn Handbolti Hamar/Þór hafði betur í nýliðaslagnum Körfubolti Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Handbolti Sædís Rún mátti þola tap gegn Arsenal og Barcelona skoraði átta Fótbolti Myndasyrpa: Dómarinn í Crocs skóm þegar gamla grasið var kvatt Íslenski boltinn Selfoss upp fyrir Stjörnuna Handbolti „Gerðum okkur stundum lífið erfiðara en það þurfti að vera“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 73-79 | Meistararnir unnu í spennutrylli á Hlíðarenda Körfubolti Fleiri fréttir Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Sædís Rún mátti þola tap gegn Arsenal og Barcelona skoraði átta Glódís Perla og stöllur sóttu sigur til Ítalíu Hinn síungi Matthías framlengir í Víkinni Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Myndasyrpa: Dómarinn í Crocs skóm þegar gamla grasið var kvatt Tuchel kornið sem fyllir mæli Gary Martin: „Núna er ég Íslendingur“ Viðurkennir að hafa tekið upp kynlífsmyndbönd í óleyfi Víkingar bjóða upp á fríar rútuferðir upp á Skaga Hlógu að nafni nýja félagsins Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Lionel Messi í miklu stuði í nótt Gripinn þegar hann hljóp að hundfúlum Ronaldo Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Segir Mbappé steinhissa og aldrei án vitna Skotar stöðvuðu Ronaldo og Eriksen tryggði Dönum stig Tveggja marka Emilía áfram í bikarnum Stimpluðu sig út með tapi gegn Dönum Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Börkur hættir hjá Val Dómarinn í Laugardalnum fór ekki eftir vinnureglum Haaland baðst afsökunar Aðeins tveir hafa skorað fyrr í landsleik en Orri í gær Ræddu dýrkeypt mistök Hákonar í íslenska markinu Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Sænskir fjölmiðlar segja Mbappé grunaðan um nauðgun „Það skilur enginn þessa reglu lengur“ Lögðu inn formlega kvörtun vegna yfirgangs FIFA Sjá meira