Enski boltinn

Liverpool samþykkir tilboð í Ibe

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jordon Ibe.
Jordon Ibe. vísir/getty
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, virðist vera búinn að gefast upp á hinum unga Jordon Ibe.

Nú er greint frá því að Liverpool hafi samþykkt 15 milljón punda tilboð frá Bournemouth í leikmanninn.

Nú fer Ibe í viðræður við félagið en hvort hann vilji fara þangað er svo allt annað mál. Ef hann fer ekki er ekki víst að hann fái að spila mikið næsta vetur.

Ibe er orðinn tvítugur en ekki tekið þeim framförum sem forráðamenn Liverpool vonuðust eftir. Miklar vonir voru bundnar við þennan dreng.

Hann hefur spilað 58 leiki fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×