Fótbolti

Morata farinn frá Juventus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Morata fagnar á EM.
Morata fagnar á EM. vísir/getty
Ítalska félagið Juventus tilkynnti formlega í dag að spænski landsliðsmaðurinn Alvaro Morata væri farinn til Real Madrid.

Morata hefur átt tvö mjög góð ár hjá Juve eftir að hafa verið keyptur á 16 milljónir punda frá Real Madrid.

Real nýtti sér aftur á móti ákvæði í samningi félaga að kaupa hann aftur á 24 milljónir punda. Hann er verðmætari en það í dag.

Morata skoraði 27 mörk í 48 leikjum í byrjunarliði Juve. Hann gaf einnig 16 stoðsendingar.

Real Madrid hefur ekki enn gefið upp hvort það ætli sér að nota leikmanninn eða selja hann strax aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×