Fótbolti

Fyrsta tap Portland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný hefur skorað fjögur mörk á tímabilinu.
Dagný hefur skorað fjögur mörk á tímabilinu. vísir/eyþór
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn fyrir Portland Thorns sem tapaði 1-2 fyrir Kansas City á heimavelli í bandarísku kvennadeildinni í fótbolta í nótt.

Þetta var fyrsta tap Portland í deildinni á tímabilinu. Liðið er samt sem áður á toppnum með 26 stig, tveimur stigum á undan New York Flash sem á leik til góða á Portland.

Shea Groom kom Kansas yfir á 23. mínútu og hún var svo aftur á ferðinni eftir níu mínútna leik í seinni hálfleik.

Kathryn Williamson minnkaði muninn á 76. mínútu en nær komst Portland ekki og leikmenn Kansas fögnuðu góðum sigri.

Dagný hefur leikið alla 13 deildarleiki Portland á tímabilinu og skorað fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×