Hin stórpólitísku tíðindi frá í gær, þau að þessir fyrrum forystumenn Sjálfstæðisflokknum hefðu haft vistarskipti, væru farin yfir í Viðreisn, urðu vitaskuld ýmsum áhugamönnum tilefni til bollalegginga. Það að fyrrum formaður og forsætisráðherra og svo fyrrum varaformaður og ráðherra, hlýtur að vera til marks um klofning í Sjálfstæðisflokknum. En gegnheilir og flokkshollir Sjálfstæðismenn eru ekkert endilega á því. Og Ingvi Hrafn talar fyrir hönd þeirra sem sárastir eru:
„Eðlilegt að sjálfstæðismenn,velti fyrir sér hvort brotthvarf 2ja lúsera úr flokksstarfinu,jafngildi klofningi,“ segir Ingvi Hrafn og seinna í athugasemd má greina særindi sem lýsa að verulegu leyti hugarfarinu sem hefur verið límið í Sjálfstæðisflokknum:

Vilja maka krókinn á kostnað þjóðhollra Íslendinga
Annar gegnheill Sjálfstæðismaður, þó hann hafi ekki alltaf átt góða daga þar innanbúðar, er fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur. Ólafur F. Magnússon og hann telur þetta undirstrika hversu ómerkilegur flokkur Viðreisn er:
„Með andstöðu "Viðreisnar" við alla grundvallarhagsmuni landsbyggðar, frumatvinnuvega og öryggis og sjálfstæðis Íslands, er nokkuð víst að vandfundinn verður sá landsbyggðarmaður, sem kýs þetta nýja "afl" græðgi og milliliða. Á höfuðborgarsvæðinu munu þeir keppa við vinstri flokka og ESB sinna og vel að merkja flugvallarandstæðinga undir sérstakri leiðsögn Þorgerðar, um fylgi. Ný Samfylking í felulitum, sem hyggst maka krókinn á kostnað þjóðhollra Íslendinga.“
Og Hallur Hallsson rithöfundur er á svipuðum slóðum þó skáldlegri sé: „Hákarlinn og þjóðin; fólkið sem tók útlenda hagsmuni yfir íslenska vill nú upp á dekk ... Er það við sama heygarðshornið ... Maður spyr sig ...“

Velkomin Þorgerður Katrín
Og fyrrverandi félagi úr Sjálfstæðisflokki, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fagnar mjög endurkomu Þorgerðar Katrínar á vettvang stjórnmálanna: „Það eru sannalega sviftingar í stjórnmálunum þessa dagana.
Ég fagna því, af einlægni og væntumþykju, að hún Þorgerður Katrín stígi aftur inn í stjórnmálin. Hún mun hér eftir sem hingað til berjast fyrir réttlætismálum og umbótum fyrir okkar litla land.“
Þó Þorbjörg Helga hafi ekki gefið það út að hún sé einnig gengin til liðs við Viðreisn eru viðbrögð hennar þannig að ætla má að þetta skref Þorgerðar og Þorsteins séu þess eðlis að margir hugsi sér til hreyfings.
En, ef sjónarhorninu er beint frá þeim hinum flokkshollu þá eru flestir áhugamenn um stjórnmála þeirrar skoðunar að um stórmerk tíðindi af hinum pólitíska vettvangi sé að ræða. Þannig segir Magnús Árni Skjöld Magnússon aðstoðarprófessor við Bifröst:

Til marks um veikan Bjarna
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri reynir að rýna undir yfirborðið og sjá fyrir hvað þetta muni hafa í för með sér. Hann gefur sér að brotthvarf þessara tveggja úr Sjálfstæðisflokknum þýði óánægju með störf formanns, og líkast til ekki erfitt að rökstyðja það: „Vandi Sjálfstæðisflokksins er að formaður hans er sífellt að sækja um starfið sitt hjá vitlausum hópi. Í stað þess að sameina alla frjálslynda hægri menn hefur hann reynt að halda verstu íhaldsmönnunum góðum, hinum viðbrennda Sjálfstæðisflokki sem líkist æ meira Framsóknarflokknum á vondum degi. Meðan formaðurinn og flokkurinn snýr í þessa áttina stefnir hann á 13,7% fylgi, frá því að vera miðja íslenskra stjórnmála í að vera áhrifalaust tuð í Reykjavíkurbréfum.“

Viðreisn fær byr í seglin
Guðmundur Gunnarsson fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins segir, á síðu Björns Inga, það einfaldlega svo að flokkurinn hafi tapað þriðjungi fylgis síns síðustu tvo áratugi. „... eða frá þeim tíma þegar hann var með fast fylgi af stærðinni 38-40%, en er í dag um og yfir 23%. Við vorum ansi mörg sem yfirgáfum flokkinn um aldamótin þegar "frelsisbyltingin" svo kallaða tók sitt flug. Maður hittir þessa dagana sífellt fleiri sem spá því að Viðreisn fá amk jafnmikið fylgi að xD. Ég spái xD 15-18% og Viðreisn 18-20%.“

Aðrir láta sér fátt um finnast
Frosti Logason útvarpsmaður og stjórnmálafræðingur segir þetta benda til þess að kosningarnar í vetur verði verulega spennandi. „Það er orðið opinbert að Viðreisn er þungavigtarframboð rétt eins og Píratar. Samfylkingin á einnig möguleika á því að raða mjög álitlegum einstaklingum á sína lista. Önnur eins staða hefur ekki verið uppi áður í aðdraganda kosninga.“
En, Frosti talar ekki inn í þann hóp sem mega heita fulltrúar annarra flokka því þeir láta sér fátt um finnast. Píratinn Thor Saari segir: „Engeyjarættin á nú tvo stjórnmálaflokka í stað eins. Það er nú eitthvað.“ Framsóknarmaðurinn Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir er á svipuðu róli: „Ó ég hélt að hann [Þorsteinn] væri löngu farinn,“ og hún lætur fylgja broskall.