Íslensk kona dæmd fyrir aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli í Englandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. september 2016 08:04 Hluti peninganna sem var gerður upptækur í málinu. mynd/af vef liverpool echo
Rúmlega þrítug íslensk kona hlaut í sumar þriggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli í Bretlandi. Barnsfaðir hennar hlaut 12 ára dóm og annar maður sem ákærður var í málinu hlaut 10 ára dóm.Fyrst var greint frá málinu í fyrra en í júlí það ár höfðu þremenningarnir verið handteknir ásamt einum manni til viðbótar. Lögreglan hafði þá gert húsleit heima hjá íslensku konunni og barnsföður hennar en þau eiga eina dóttur saman og bjuggu í bænum Melling á Norður-Englandi, ekki langt frá Liverpool. Við húsleitina heima hjá parinu og í bíl þriðja mannsins fundust samtals þrettán kíló af heróíni, 1,2 milljónir evra og 38.000 pund í reiðufé, sem samsvara rúmum 160 milljónum króna. Lögregla mat götuverð heróínsins sem fannst á 1,3 milljónir punda eða um 155 milljónir króna. Fjallað er um dóminn á vef Liverpool Echo. Þar er haft eftir dómara í málinu að upphæðin sem fannst í reiðufé í málinu hafi verið undraverð og magnið af fíkniefnum ótrúlega mikið. Þremenningarnir játuðu öll peningaþvætti og þá játaði barnsfaðir íslensku konunnar að hafa ætlað að koma heróíninu í verð. Þriðji maðurinn var fundinn sekur um aðild að málinu í kjölfar aðalmeðferðar málsins fyrir dómstólum. Hér að neðan má sjá myndband um málið af vef Liverpool Echo og hér má sjá nánari umfjöllun á sama vef.
Tengdar fréttir Handtekin með 13 kíló af heróíni: Engin beiðni borist utanríkisráðuneytinu Þrítug íslensk kona, Kolbrún Ómarsdóttir, var handtekin í Melling á Englandi þann 7. júlí síðastliðinn fyrir vörslu eiturlyfja og peningaþvætti. Konan var handtekin ásamt þremur breskum körlum. 11. ágúst 2015 07:00 Þrítug íslensk kona handtekin: 13 kíló af heróíni og milljón pund gerð upptæk Konan var handtekin ásamt þremur öðrum í aðgerðum lögreglunnar í Liverpool í júlí. 8. ágúst 2015 00:31 Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Sjá meira
Handtekin með 13 kíló af heróíni: Engin beiðni borist utanríkisráðuneytinu Þrítug íslensk kona, Kolbrún Ómarsdóttir, var handtekin í Melling á Englandi þann 7. júlí síðastliðinn fyrir vörslu eiturlyfja og peningaþvætti. Konan var handtekin ásamt þremur breskum körlum. 11. ágúst 2015 07:00
Þrítug íslensk kona handtekin: 13 kíló af heróíni og milljón pund gerð upptæk Konan var handtekin ásamt þremur öðrum í aðgerðum lögreglunnar í Liverpool í júlí. 8. ágúst 2015 00:31