Byssumaðurinn í Kristjaníu særðist í átökum við lögreglu 1. september 2016 07:54 Vísir/AFP
Til skotbardaga kom í morgun á milli lögreglunnar í Kaupmannahöfn og manns sem grunaður er um að hafa sært tvo lögreglumenn og einn almennan borgara í fríríkinu Kristjaníu í gærkvöldi. Lögreglan hafði gert áhlaup inn í hverfið í gærkvöldi til að uppræta þar hasssölu þegar maðurinn, sem sagður er á þrítugsaldri, tók upp byssu og hóf skothríð. Hann er sagður þekktur fíkniefnasali í hverfinu, sem um áratugaskeið hefur verið miðstöð eiturlyfjasölu í Danmörku. Annar lögreglumannanna er alvarlega særður en hann fékk skot í höfuðið. Hinn lögreglumaðurinn, sem og almenni borgarinn, særðust báðir á fæti. Mannsins var leitað um alla borgina í nótt og í morgun gerði sérsveit lögreglunnar áhlaup á hús í Kastrup þar sem hann hafði leitað skjóls. Til skotbardaga kom á milli mannsins og lögreglu og særðist hinn grunaði í þeim átökum. Ástand hans er ekki ljóst. Rannsókn málsins er nú komin í hendur innra eftirlits lögreglu. Lögreglustjórinn í Kaupmannahöfn segist vonast til að skotárásin vekji íbúa Kristjaníu til umhugsunar. Hann segir ljóst að eiturlyfjasalar séu orðnir of fyrirferðarmiklir í fríríkinu og skoraði hann á íbúa hverfisins að skera upp herör gegn eiturlyfjasölunni.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Sjá meira