Innlent

Þyrla Gæslunnar sækir veikan mann um borð í erlent flutningaskip

Atli Ísleifsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir nú veikan mann um borð í erlent flutningaskip, en beiðni um aðstoð barst skömmu fyrir klukkan 11.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að skipið hafi verið statt um 24 sjómílur suðaustur af Alviðru, austur af Vík í Mýrdal.

„Nú rétt fyrir klukkan 13:00 var þyrlan komin á vettvang og mun hún flytja sjúklinginn á sjúkrahús í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×