Innlent

Fótbrotinn eftir líkamsárás á Hverfisgötu

Atli Ísleifsson skrifar
Leitað var að árásaraðilanum en án árangurs enn sem komið er.
Leitað var að árásaraðilanum en án árangurs enn sem komið er. Vísir/Pjetur
Tilkynnt var um líkamsárás á Hverfisgötu á móts við verslunina 10-11 við Barónstíg klukkan 15:21 í dag.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að þegar lögregla kom á vettvang reyndist annar aðilinn farinn en hinn, ungur karlmaður, sat eftir slasaður á fæti. Hann var fluttur á slysadeild og er grunur um að hann sé fótbrotinn. „Leitað var að árásaraðilanum en án árangurs enn sem komið er.“

Fyrr í dag var einnig tilkynnt um þrjú umferðaróhöpp,  tvö þar sem um minniháttar skemmdir urðu á ökutækjum og enginn meiddist og eitt þar sem tjónvaldur stakk af án þess að gera grein fyrir sér. Það gerðist í Skeifunni um kl. 16:28. Lögregla biður viðkomandi, sem og vitni, um að gefa sig fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×