Innlent

Eldur í raðhúsi á Seltjarnarnesi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Ernir
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út í kvöld auk sjúkrabíla vegna elds sem kom upp í raðhúsi í Nesbala á Seltjarnarnesi. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins virðist sem að eldurinn hafi kviknað út frá ísskáp og olli hann miklu tjóni í eldhúsi hússins.

Eftir að eldurinn hafði verið slökktur og rekræsting var hafin kom í ljós að enn voru glæður í þakinu og brugðust slökkviliðsmenn við því.

Slökkvilið frá tveimur stöðvum var kallað til baka eftir útkallið og eru því slökkviliðsmenn frá tveimur stöðvum á vettvangi.

Vísir/Halli
Vísir/Ernir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×