Innlent

Aðstoðuðu örmagna rjúpnaskyttu á Miðdalsfjalli

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn var bæði illa áttaður og með skerta meðvitund.
Maðurinn var bæði illa áttaður og með skerta meðvitund. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni var síðdegis í dag kölluð út til aðstoðar rjúpnaskyttu sem hafði örmagnast og ofkælst á Miðdalsfjalli norðan Laugarvatns.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir að þegar hjálp barst hafi maðurinn verið bæði illa áttaður og með skerta meðvitund.

„Vel gekk að flytja veiðimanninn niður af fjallinu þar sem farið var með hann í hús, hlúð að honum og hann færður í þurr og hlý flöt meðan beðið var sjúkrabíls sem flutti hann til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×