Innlent

Ökumaðurinn sem lést var á átjánda aldursári

Sunna Karen SIgurþórsdóttir skrifar
Pilturinn, sem var einn á ferð, hafði kastast út úr bifreiðinni og var úrskurðaður látinn á vettvangi slyssins.
Pilturinn, sem var einn á ferð, hafði kastast út úr bifreiðinni og var úrskurðaður látinn á vettvangi slyssins. Vísir
Ökumaðurinn sem lést í umferðarslysi skammt frá Fagurhólsmýri í Öræfum í morgun var á átjánda aldursári. Pilturinn, sem var einn á ferð, hafði kastast út úr bifreiðinni og var úrskurðaður látinn á vettvangi slyssins.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að bíllinn hafi farið út af veginum og oltið. Talið er að nokkur stund hafi liðið frá því að slysið varð þegar það uppgötvaðist, en pilturinn hafði farið frá Höfn um miðja nótt áleiðis vestur Suðurlandsveg.

Lögregla biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um málið, eða urðu varir við bíl piltsins, sem er dökkgrænn Toyota Land Cruiser árgerð 2001, að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi.

Slysið varð við Fagurhólsmýri í Öræfum.KORT/LOFTMYNDIR.IS

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×