Lokatölur úr Reykjavík norður: Karl Garðarsson missti þingsæti sitt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. október 2016 04:29 Karl Garðarsson fráfarandi þingmaður Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm
Karl Garðarsson er nú fráfarandi þingmaður Framsóknarflokksins en þetta varð ljóst eftir að lokatölur bárust úr Reykjavíkurkjördæmi norður núna á fimmta tímanum. Flokkurinn hlaut 1987 atkvæði eða 5,7 prósent í kjördæminu. Eins og staðan er núna er Samfylkingin heldur ekki með mann inni í Reykjavík norður en Sigríður Ingibjörg Ingadóttir oddviti flokksins gæti dottið inn á lokametrunum sem jöfnunarþingmaður. Helgi Hjörvar núverandi þingflokksformaður Samfylkingarinnar á hins vegar ekki möguleika á að komast á þing en hann skipaði 2. sætið á lista flokksins.Kjörsókn í Reykjavík norður var tæplega 78 prósent en stærsti flokkurinn í kjördæminu er Sjálfstæðisflokkurinn með 24,5 prósent atkvæða. Vinstri græn koma þar næst á eftir með 20,9 prósent og Píratar eru þriðji stærsti flokkurinn með 19 prósent atkvæða. Kjörstjórnin í Reykjavík norður var sú fyrsta til að skila af sér lokatölum en ómögulegt er að segja til um hvenær úrslit kosninganna liggja fyrir. Eins og tölurnar standa núna er Sjálfstæðisflokkurinn langstærsti flokkurinn á þingi með 28,5 prósent atkvæða á landsvísu. Vinstri græn koma þar á eftir með 17 prósent atkvæða á landinu öllu og þá koma Píratar með 14,5 prósent. Framsókn og Samfylkingin tapa miklu á landsvísu og hljóta nú sína verstu kosningu í sögunni.
Kosningar 2016 X16 Reykjavík Norður Mest lesið „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Innlent „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Innlent Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Innlent Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Erlent Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent „Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Innlent Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Innlent Fleiri fréttir Bjarni sér ekki eftir að hafa endurnýjað stjórnarsamstarfið Markmið og tilgangur laganna hafi aldrei breyst Fjölskylda komst lífs af eftir ótrúlega tilviljun Ævarandi skömm og tilviljun sem bjargaði fjölskyldu Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi Þörf á efnisreglum eftir fordæmalausan dóm Ekkert verður af verkfalli í Hafnarfirði „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Bein útsending: Samfélag á krossgötum „Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Lofsamlegar umsagnir um Svanhildi: „Leiðtogi, liðsmaður og drífandi dugnaðarforkur” Deila um Stálskipaauðinn fyrir Hæstarétt Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Á sjöunda þúsund hafa kosið utankjörfundar Fuglaflensa greindist í mávi við Reykjavíkurtjörn Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Kvikmyndagerðarfólk bænheyrt og sjóðnum komið til bjargar Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Fjárlög samþykkt en VG sat hjá Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Tóku skref í rétta átt um helgina Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Sjá meira