Innlent

Líklegt að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar næstu daga

Gissur Sigurðsson skrifar
Herjólfur sigldi lítið til Landeyjahafnar í nýliðnum mánuði.
Herjólfur sigldi lítið til Landeyjahafnar í nýliðnum mánuði. Vísir/Magnús Hlynur
Góðar horfur eru nú á að Herjólflur geti siglt til Landeyjahafnar næstu daga, nema hvað ölduhæðin fer hugsanlega yfir tvo metra um tíma í dag.

Annars er ölduspá hagstæð fram í næstu viku og dýpi nægjanlegt samkvæmt nýjum mælingum. Dæluskip er líka til taks ef annað kemur í ljós.

Lítið var siglt til Landeyjahafnar í nýliðnum mánuði  þannig að Eyjamenn horfa nú fram á betri tíð, hvað samgöngur varðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×