Telur Eyjafjörð í orkusvelti Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. desember 2016 07:00 Eyjafjörður þarf meiri orku til að íbúarnir dafni, segir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Fréttablaðið/Pjetur
Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkarhepps í Eyjafirði. „Það virðist hafa myndast þverpólitísk samstaða um að Eyjafjörður og jafnvel Norðurland allt skuli vera orkusvelt til framtíðar,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, í nýjum pistli á heimasíðu hreppsins. Þröstur segir flutningskerfi raforku inn á Eyjafjarðarsvæðið vera sprungið og ekki taki minna en fimm ár að bæta þar úr. Virkjanleg fallvötn í Skagafirði og Þingeyjarsýslu séu í verndarflokki og vaxandi andstöðu gæti við gufuaflsvirkjanir auk efasemda um endingu jarðhitans. Allir stjórnmálaflokkar séu andvígir lagningu háspennulínu yfir Sprengisand. „Þeir stjórnmálamenn og einnig umhverfisverndarsinnar sem ætla að koma í veg fyrir lagningu línu yfir Sprengisand eru í reynd að lýsa því yfir að ekki skuli lengur ríkja jafnrétti til búsetu á Íslandi,“ skrifar Þröstur. „Aðrar leiðir til að leysa orkuþörf hér á svæðinu eru einfaldlega verri í öllu tilliti, hvort sem horft er til kostnaðar eða umhverfis. Byggð sem ekki á kost á rafmagni af pólitískum ástæðum á sér enga von um að geta vaxið og dafnað eðlilega.“ Þá segir Þröstur það hrikalega hömlun á framfarir og íbúaþróun að ekki sé hægt að útvega raforku til þeirra sem áhuga hefðu á að stofna til nýrrar atvinnustarfsemi. Gagnaver og önnur meðalorkufrek starfsemi séu alveg út úr myndinni næstu árin, jafnvel áratugi. „Það sem enn verra er, að jafnvel þó að takist að tengja vestur til Blöndu og austur til Kröflu, mun áfram vanta afl og öryggi í kerfið til frambúðar meðan ekki tekst að tengja við virkjanir á suðurhálendinu,“ segir sveitarstjórinn meðal annars í pistli sínum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Salmonella í Pekingönd Neytendur Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira