Körfubolti

Barrett hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Snæfell

Stefán Árni Pálsson skrifar
Barrett í leik með Snæfellingum
Barrett í leik með Snæfellingum
Sefton Barrett hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Snæfellinga. Hann er farinn í jólafrí og mun ekki snúa til baka í Hólminn. Þetta staðfestir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, í samtali við vefsíðuna karfan.is

Barrett er með 21 stig, 11,3 fráköst og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik í vetur en Ingi Þór hefur ekki verið nægilega sáttur með hans spilamennsku á tímabilinu.

Snæfell hefur tapað öllum leikjum sínum í deildinni og er í langneðsta sæti Dominos-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×