Körfubolti

Jakob lék vel en liðið tapaði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. mynd/borasbasket.se
Jakob Sigurðarson og félagar í Borås töpuðu fyrir Nässjö, 85-77, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Jakob lék vel í leiknum og gerði hann tuttugu stig, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Úrslitin nokkuð óvænt en eftir leikinn er Nässjö í sjöunda sæti deildarinnar og Jakob og félagar eru í því fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×