Fótbolti

Cavani kom meisturunum til bjargar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Edinson Cavani jafnar metin í 2-2 með sínu öðru marki.
Edinson Cavani jafnar metin í 2-2 með sínu öðru marki. vísir/getty
Nice heldur áfram að koma á óvart í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta en í kvöld gerði liðið 2-2 jafntefli við Paris Saint-Germain á heimavelli meistarana, Parc des Princes.

Með jafnteflinu endurheimti Nice toppsætið en Monaco skaust tímabundið á toppinn með 0-4 sigri á Bordeaux í gær.

Nice er með 40 stig, einu stigi á undan Monaco og fjórum stigum á undan PSG sem er í 3. sæti deildarinnar.

Nice var 0-2 yfir í hálfleik í leiknum í kvöld. Wylan Cyprien kom liðinu yfir á 32. mínútu og í uppbótartíma fyrri hálfleiks bætti Alassane Pléa öðru marki við.

Úrúgvæinn Edinson Cavani kom PSG til bjargar í seinni hálfleik. Hann minnkaði muninn í 1-2 á upphafsmínútu seinni hálfleiks og jafnaði svo metin með sínu öðru marki eftir klukkutíma leik. Lokatölur 2-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×