Fótbolti

Arnór Ingvi lagði upp mark í öðrum sigri Rapid Vín í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór Ingvi skoraði síðasta deildarleik Rapid Vín og lagði upp mark í dag.
Arnór Ingvi skoraði síðasta deildarleik Rapid Vín og lagði upp mark í dag. vísir/epa
Arnór Ingvi Traustason lagði upp eitt marka Rapid Vín í 3-1 sigri á Ried í austurrísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Þetta var annar sigur Rapid Vín í röð en liðið er í 5. sæti deildarinnar með 27 stig eftir 19 leiki.

Arnór Ingvi tryggði Rapid Vín sigur á St. Polten um síðustu helgi og hann lagði upp fyrsta mark liðsins í dag.

Ried komst yfir strax á 4. mínútu en Mario Sonnleitner jafnaði metin á 26. mínútu eftir sendingu Arnórs Ingva sem fór af velli í hálfleik. Giorgi Kvilitaia tryggði Rapid Vín svo sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik.

Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliði Grasshoppers sem gerði markalaust jafntefli við Lugano í svissnesku úrvalsdeildinni. Rúnar Már lék fyrstu 79 mínúturnar.

Grasshoppers er í 5. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 18 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×