Innlent

Miklubraut lokað vegna þriggja bíla áreksturs

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Loka þurfti Miklubraut til vesturs í kvöld eftir harðan þriggja bíla árekstur. Tveir voru fluttir á slysadeild samkvæmt lögreglu en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir. Nánar tiltekið varð áreksturinn til móts við Mörkina.

Á meðan á störfum lögreglu stóð var Miklubrautinni lokað frá Sæbraut að Grensásvegi, en þegar þetta er skrifað (22:10) er lögreglan nálægt því að ljúka störfum og stendur til að opna aftur fyrir umferð.

Tveir af bílunum sem lentu í árekstrinum voru fluttir af svæðinu með krana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×