Innlent

Truflanir á fjarskiptasamböndum á Austurlandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Nokkuð var um það að rafmagnsstaurar brotnuðu í óveðrinu á Austurlandi í gær.
Nokkuð var um það að rafmagnsstaurar brotnuðu í óveðrinu á Austurlandi í gær. vísir/gva
Nokkuð var um það að rafmagnsstaurar brotnuðu og misstu samband í óveðrinu sem gekk yfir Austurland í gær og nótt.

Í tilkynningu frá Mílu kemur fram að þetta hafi valdið rafmagnsleysi sem meðal annars hefur áhrif á fjarskiptasambönd á Austurlandi sem tengjast tækjahúsi Mílu á Hafrafelli.

Vararafstöð er nú komin í gang en Míla vill vekja athygli á því að með henni er aðeins unnt að halda úti lágmarks fjarskiptaþjónustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×