Innlent

Bein útsending: Aftansöngur í Grafarvogskirkju

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Líkt og undanfarin ár munu Stöð 2 og Vísir sýna beint frá aftansöng í Grafarvogskirkju á aðfangadagskvöld.

Útsendingin hefst stundvíslega klukkan 18:00. Prestur verður séra Guðrún Karls Helgudóttir, kór Grafarvogskirkju syngur og Sigríður Soffía Hafliðadóttir stjórnar barnakór.

Þá syngur Egill Ólafsson einsöng, Hákon Leifsson er organisti, Greta Salóme Stefánsdóttir leikur á fiðlu og Gunnar Hrafnsson á kontrabassa.

Útsendinguna má sjá í spilaranum hér að ofan.

Uppfært klukkan 19:30

Messunni er lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×