Fótbolti

Fjölskylda Ólafs Inga flutti til Íslands eftir valdaránstilraunina í Tyrklandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Svo gæti farið að Ólafur Ingi Skúlason spili hér á landi næsta sumar. Miðjumaðurinn liggur nú undir feldi og íhugar framtíð sína en hann á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við tyrkneska liðið Karabükspor. Fjölskylda Ólafs Inga flutti heim til Íslands eftir valdaránstilraunina í Tyrklandi í sumar og það styttist í heimkomu hjá honum.

„Það er erfitt að tala um það, ég á eitt og hálft ár eftir af samning og líður ágætlega og liðinu gengur vel. Þetta snýst að öllu leyti um fjölskylduna. Við verðum að setjast niður og taka lokaákvörðun um það á næstunni,“ sagði Ólafur Ingi í samtali við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Auðvitað er maður farinn að huga að því [heimkomu]. Ég verð 34 ára þegar tímabilið er búið þannig að maður er ekkert að yngjast,“ sagði Ólafur Ingi sem ætlar að spila nokkur ár hér heima áður en hann leggur skóna á hilluna frægu.

„Það er planið. Ég hef að mestu sloppið við meiðsli undanfarin ár og líkaminn er í fínu standi. Ég stefni að því að spila þangað til maður hættir að geta eitthvað,“ sagði miðjumaðurinn sem hefur leikið í Tyrklandi frá haustinu 2015, fyrst með Gençlerbirliği og svo með Karabükspor.

Stjórnmálaástandið í Tyrklandi er eldfimt en valdaránstilraun var gerð þar í landi í sumar.

„Fyrsta árið vorum við fjölskyldan saman. Í kjölfar valdaránstilraunarinnar ákváðum við að fjölskyldan yrði heima og ég myndi taka þetta ár einn úti,“ sagði Ólafur Ingi.

„Heilt yfir finnst mér þetta æðislegt land og yndislegt fólk. Maður er hálf leiður yfir því hvernig staðið er að málum og þessi endalausu hryðjuverk og leiðindi milli Tyrkja og Kúrda. Svo er stutt til Sýrlands þar sem allt logar. Maður vonar að það rætist úr þessu og lífið verði eðlilegt.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×