Fótbolti

Neymar aldrei verið eins stressaður og er hann tók lokavítið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Neymar þakkar Guði eftir að hafa skorað úr vítinu.
Neymar þakkar Guði eftir að hafa skorað úr vítinu. vísir/getty
Brasilíska knattspyrnustjarnan Neymar hefur upplifað margt á ferlinum hingað til en hefur aldrei fundið fyrir eins mikilli pressu og á Ólympíuleikunum síðasta sumar.

Þá tók hann síðasta vítið fyrir Brasilíu í vítaspyrnukeppni gegn Þýskalandi í úrslitaleiknum. Neymar skoraði úr vítinu og tryggði Brasilíu sitt fyrsta Ólympíugull í fótbolta. Einu verðlaunin sem Brasilía hafði ekki unnið.

„Ég man vel eftir því er ég labbaði að vítapunktinum. Ég hef aldrei verið eins stressaður um ævina. Ég spurði Guð hvert ég ætti að sparka boltanum. Hann róaði mig svo niður og hjálpaði mér við að skora úr vítinu,“ sagði Neymar um þetta fína samstarf við himnaföðurinn.

Það var mikil pressa á Neymar á leikunum. Brasilía á heimavelli og allt lagt undir til þess að vinna gullið. Eftir brösuga byrjun small allt hjá Brössunum og þeir lönduðu gullinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×