Innlent

Búið að ákveða leyfilega heildarveiði kolmunna og norsk-íslensku síldarinnar

Atli Ísleifsson skrifar
Upphafsveiði á kolmunna er ákveðin 150.000 tonn.
Upphafsveiði á kolmunna er ákveðin 150.000 tonn. Vísir/Pjetur
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerðir um leyfilega heildarveiði á norsk-íslenskri síld og leyfilega upphafsveiði á kolmunna á árinu 2017.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að leyfilegur heildarafli á norsk-íslenskri síld verði 102.984 tonn.

„Talan miðast við hlut Íslands í samningi frá 2007 og ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknastofnunarinnar (ICES) ásamt 10% aukningu í samræmi við ákvörðun Noregs, sem hefur langstærstan hlut í stofninum, og jók fyrir skömmu einhliða hlut sinn úr 61% í 67% af heildaraflanum.

Upphafsveiði á kolmunna er ákveðin 150.000 tonn en leyfilegur heildarafli verður endanlega ákveðinn þegar fyrir liggja ákvarðanir annarra ríkja um sinn heildarafla. Stjórnvöld munu við þá ákvörðun horfa til þess að hagsmunir Ísland verði ekki fyrir borð bornir,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×