Fatlaðir ósáttir við að fá ekki þjónustu um áramót 28. desember 2016 06:00 Ferðaþjónusta fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu segir verklagið nú ekki frábrugðið síðustu árum.
samfélagsmál Fatlaðir eru margir hverjir óánægðir með að Ferðaþjónusta fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu hætti akstri klukkan þrjú á gamlársdag. Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, segir þessa framkvæmd langt í frá í takt við þarfir fatlaðra og er ósáttur við framkvæmdina. Strætó segir hins vegar að verklagið við akstur fatlaðra um þessi jól sé ekki frábrugðið því sem verið hefur. „Okkur þykir þessi framkvæmd fyrir neðan allar hellur,“ segir Bergur Þorri. „Þetta er bara eitt dæmi af mörgum í sambandi við ferðaþjónustu fatlaðra sem við skiljum bara ekki.“ Í þjónustulýsingu fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa samþykkt, segir að akstur á stórhátíðardögum sé eins og á sunnudögum eða frá 11 að morgni til miðnættis. Strætó segir hins vegar að sú klásúla eigi ekki við um aðfangadag og gamlársdag. „Akstur í ár er með sama fyrirkomulagi og hefur verið undanfarin ár. Akstur á aðfangadag og gamlársdag er miðaður við að síðustu farþegar fari um borð k.l 15.00. Eftir þann tíma er farþegum vísað á leigubifreiðastöðvar eins og öðrum farþegum almenningssamgangna og hafa stöðvarnar m.a. sérútbúna bíla fyrir fatlaða,“ segir Erlendur Pálsson, upplýsingafulltrúi Strætó. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Strætó, segir það klaufalega orðað í þjónustulýsingunni að akstur á stórhátíðardögum miðist við sunnudaga. „Þá erum við að tala um jóladag og nýársdag. Gamlársdagur er í raun ekki allur stórhátíðardagur. Samkvæmt þjónustulýsingu er Ferðaþjónusta fatlaðra alveg eins og almenningssamgöngur og þær stöðvast á þeim tíma,“ segir Heiða Björg. Bergur Þorri segir þjónustuna alls ekki nægilega góða. „Í raun er Ferðaþjónusta fatlaðra haldreipi margra fatlaðra til að verjast einangrun og margir stóla á þessa þjónustu. Það er því mjög leiðinlegt ef einhverjir þurfa að sitja heima og komist ekki leiðar sinnar um áramótin,“ segir Bergur Þorri. sveinn@frettabladid.is
Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Erlent Fleiri fréttir Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Riddari kannana mætir í Samtalið Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Vilja 62 milljónir til að tryggja vopnabirgðir lögreglu og sérsveitar „Hófleg snjókoma og ólíklegt að þetta setjist á vegi“ Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi Hættir við að hætta og vill fimm ár í viðbót á RÚV Sjá meira