Innlent

Sveitarstjórnin gerð afturreka með nýjan strandblakvöll á Vopnafirði

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Gerð strandblakvallar á Vopnafirði var stöðvuð og framkvæmdaleyfið síðan fellt úr gildi eftir kæru frá eigendum næstu húsa. Völlurinn er við enda skólalóðar grunnskólans.
Gerð strandblakvallar á Vopnafirði var stöðvuð og framkvæmdaleyfið síðan fellt úr gildi eftir kæru frá eigendum næstu húsa. Völlurinn er við enda skólalóðar grunnskólans.
Ákvörðun sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps um að gefa framkvæmdaleyfi fyrir strandblakvelli í þorpinu hefur verið felld úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Engin formleg umsókn lá fyrir vegna gerðar strandblakvallarins sem átti að vera á lóð Lónabrautar 4 heldur hafði áhugafólk rætt málið óformlega við sveitarstjórann.

Þrátt fyrir athugasemdir nágranna var blakvöllurinn samþykktur og lögðu þá eigendur þriggja nærliggjandi húsa fram kæru „meðal annars vegna sandfoks, sem aldrei verði hægt að koma í veg fyrir, ónæðis vegna hávaða, sem þau þegar hafi reynslu af vegna nærliggjandi sparkvallar, og þess að sækja þurfi bolta í garða fólks lendi hann út af við annan enda vallarins,“ segir í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar.

Frá Íslandsmótinu í strandblaki sem nýtur vaxandi vinsælda hérlendis. Einhver bið verður á því að strandblaksvöllur mæti á Vopnafjörð.vísir/daníel
Þá sögðu nágrannarnir að útsýni myndi skerðast mikið. „Ef byggður yrði skjólveggur eða girðing tæki það í burtu kvöldsólina sem íbúar neðan við njóti núna. Þar sem verið sé að byggja upp íþróttaaðstöðu með væntanlegu vallarhúsi annars staðar í bænum skilji kærendur ekki staðsetningu blakvallarins.“

Þá segja kærendurnir að það hafi fyrst verið eftir margar kvartanir og yfirlýst mótmæli á öllum stigum við bæði sveitarstjóra og oddvita sveitarstjórnar sem loks hafi verið fallist á grenndarkynningu. Þá hafi framkvæmdir verið komnar vel á veg.

„Send hafi verið bréf til fimmtán aðila vegna kynningarinnar og níu þeirra sem hafi fengið bréf hafi mótmælt staðsetningunni harkalega,“ segir áfram í umfjölluninni. 

Í málsvörn Vopnafjarðarhrepps kemur fram a sandurinn í blakvellinum verði sambærilegur sandi sem notaður sé í slíka velli um allt land. „Hafi hann lítið fokgildi. Reynist þörf á að breiða yfir völlinn við ákveðnar aðstæður verði það gert til að hindra enn frekar að sandur berist frá vellinum.“

Varðandi hávaða bendir sveitarfélagið á lögreglusamþykkt Vopnafjarðarhrepps þar sem segi að lögregla geti vísað fólki, sem valdi vegfarendum eða íbúum í nágrenni ónæði, burtu af almannafæri. „Ekkert við framkvæmd vallarins muni hafa áhrif á útsýni frá húsum á svæðinu,“ er vitnað til raka Vopnafjarðarhrepps.

Úrskurðarnefndin segir að Vopnafjarðarhreppur hafi hvorki fullnægt kröfum skipulagslaga né kröfum reglugerðar um framkvæmdaleyfi. „Var undirbúningi hins kærða framkvæmdaleyfis verulega áfátt og voru skilyrði ekki til staðar fyrir veitingu þess.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×