Enski boltinn

Klopp gerði langan samning við Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Klopp er ekki að fara neitt.
Klopp er ekki að fara neitt. vísir/getty
Stuðningsmenn Liverpool kætast í morgunsárið við þær fréttir að stjórinn, Jürgen Klopp, sé búinn að gera nýjan samning við félagið.

Nýi samningurinn er til sex ára og rennur því ekki út fyrr en árið 2022.

Gamli samningur Klopp við félagið var aðeins til ársins 2018 en eftir árangur Klopp á síðustu leiktíð vildi félagið endilega gera sem lengstan samning við Þjóðverjann.

Klopp reif Liverpool upp í deildinni og kom liðinu í úrslit Evrópudeildarinnar.

Eigendur Liverpool sjá fram á bjarta tíma með Klopp í brúnni næstu árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×