Fótbolti

Vöðvabúningar vekja furðu á Spáni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Búningurinn umræddi.
Búningurinn umræddi. Mynd/CD Palencia
Spænska D-deildarliðið hefur vakið athygli víða um heim eftir nýtt útlit á keppnisbúningi liðsins sem var kynnt í gær.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er engu líkara en að búningurinn fletti húðina af leikmanninum og sýni bera vöðvana.

CD Palencia var stofnað fyrir aðeins fjórum árum síðan og mun klæðast nýja búningnum í umspili spænsku D-dildarinnar um sæti í C-deildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×