Innlent

Eldur kom upp í snjóbíl Ársæls í Skeifunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Töluverður eldur kom upp inn í snjóbílnum.
Töluverður eldur kom upp inn í snjóbílnum. Kristinn Ólafsson
Eldur kviknaði í snjóbíl Björgunarsveitarinnar Ársæls í dag þar sem hann stóð við flugeldasölu sveitarinnar í Skeifunni. Það varð þó til happs að hann hafði verið við flugeldasöluna þar sem nóg er af slökkvitækjum og slökktu meðlimir sveitarinnar eldinn tiltölulega fljótt.

Hrund Jörundsdóttir, formaður björgunarsveitarinnar, segir í samtali við Vísi að bíllinn sé mjög illa farinn að innan. Þó á eftir að fara betur yfir bílinn til að kanna tjónið. Björgunarsveitin var nýbúin að gera snjóbílinn upp. Hrund segir gott að allir séu heilir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×