Innlent

Braust inn og stal óopnuðum jólapökkum á Suðurnesjum

Atli Ísleifsson skrifar
Pakkarnir voru undir trénu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Pakkarnir voru undir trénu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Óprúttinn aðili braust nýverið inn á heimili á Suðurnesjum og stal meðal annars þremur óopnuðum jólapökkum undan jólatré.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að innbrotsþjófurinn, eða þjófarnir, hafi farið inn um laust fag í stofuglugga á bakhlið hússins, en auk jólapakkanna hafði hann með sér þrjár tölvur og snyrtivörur.

Þá barst lögreglunni á Suðurnesjum einnig tilkynning um innbrot í bát í Sandgerðishöfn í gær. „Sá eða þeir sem voru þar að verki höfðu brotið sér leið inn um glugga bakborðsmegin og haft á brott með sér útvarpstæli. Ekki er ljóst hvort fleiru var stolið,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×