Innlent

Þyrla hefði getað flutt hjartasjúkling suður

Sveinn Arnarsson skrifar
NA/SV-brautinni var lokað með samkomulagi ríkis og borgar.
NA/SV-brautinni var lokað með samkomulagi ríkis og borgar. vísir/ernir
Sjúklingurinn sem fluttur var með sjúkraflugi frá Hornafirði til Akureyrar í fyrradag vegna þess að ekki var hægt að lenda á Reykjavíkurflugvelli var ekki í lífshættu þrátt fyrir að vera í svokölluðum F1 forgangi sem er bráð lífsógn eða bráðatilvik sjúklinga. Ekki var óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar til að koma sjúklingnum í þessum forgangi til Reykjavíkur.

„Sjúklingurinn sem hér um ræðir hefur verið til meðferðar á hjartadeild Landspítalans og var það fyrsta val að koma sjúklingnum undir læknishendur þar til hjartasérfræðinga sem hafa unnið með sjúklinginn og þekkja hann þar af leiðandi best,“ segir Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á sjúkrahúsinu á Akureyri.

„Þess í stað kom hann hingað í læknishendur hjartasérfræðinga hér nyrðra. Við getum tekið við sjúklingum af þessari tegund en ef um bráðahjartaþræðingu er að ræða getum við lítið gert.“

Sigurður Einar Sigurðsson
Hins vegar var þyrla Landhelgisgæslunnar ekki sett í viðbragðsstöðu til að fljúga með sjúklinginn til Reykjavíkur.

Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir enga beiðni hafa borist vegna þessa flugs. Einnig segir hann mjög líklegt að þyrla gæslunnar hefði getað komið sjúklingnum til Reykjavíkur klakklaust.

Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs, segir bara tímaspursmál hvenær einstaklingur í lífshættu þurfi að komast í læknishendur.

„Í raun er það bara tímaspursmál hvenær alvarlegt atvik kemur upp og því þarf að gera eitthvað til að tryggja öryggi allra landsmanna og aðgang þeirra að heilbrigðisþjónustu,“ segir Leifur.

Ástæða þess að ekki var hægt að lenda í Reykjavík var sú að flugbraut 06/24 er ekki í notkun en Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi samgönguráðherra, skrifaði undir samkomulag við Jón Gnarr, þáverandi borgarstjóra, í október 2013 sem fól í sér lokun flugbrautarinnar.

Þorkell Ásgeir Jóhannsson flugmaður, sem var flugstjóri í umræddri ferð, sagði á Facebook að það væri að „storka örlögum“ fólks að hafa flugbrautina lokaða.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Sjúkravél Mýflugs gat ekki lent í Reykjavík

Ekki var hægt að fljúga sjúkraflug með alvarlegan veikan mann frá Hornafirði til Reykjavíkur í gær vegna þess að allar brautir nema NA/SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar voru ófærar vegna veðurs. Brautinni var lokað í júlí síðastlið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×