Bandarískur nemandi handtekinn í Norður Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 22. janúar 2016 10:09 Frá 70 ára afmælishátíð Verkamannaflokksins í Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Yfirvöld Norður Kóreu tilkynntu í dag að bandarískur nemandi hefði verið handtekinn þar í landi. Hann ferðaðist til Norður Kóreu sem ferðamaður, en er sakaður um ótilgreint „óvinveitt atferli“ og sagður vera á vegum stjórnvalda Bandaríkjanna. Nemandinn, sem heitir Otto Frederick Warmbier, er sagður hafa komið til einræðisríkisins til að „gera út af við einingu þjóðarinnar.“ Þetta kemur fram á vef KCNA, ríkisfjölmiðils Norður Kóreu. Þar segir að nemandinn sé til frekari rannsóknar. Í síðasta mánuði var 60 ára gamall prestur frá Kanada dæmdur til þrælkunarvinnu fyrir æsa íbúa gegn stjórnvöldum Norður Kóreu. Samkvæmt AFP fréttaveitunni hafa yfirvöld landsins notað hugtakið „óvinveitt atferli“ áður gegn erlendum aðilum sem hafa verið handteknir. Þá þykir að að Warmbier er sagður hafa verið á vegum stjórnvalda Bandaríkjanna gefa í skyn að hann verði líklega ákærður fyrir njósnir. Kínversks ferðaskrifstofa hefur staðfest að einn af viðskiptavinum þeirra hafi verið handtekinn í Pyongyang, höfuðborg Norður Kóreu. Bandaríkin eru nú, ásamt Suður Kóreu, í forsvari fyrir hertar þvinganir gegn Norður Kóreu vegna kjarnorkuvopnatilrauna þeirra. AP fréttaveitan segir að stjórnvöld Norður Kóreu hafi áður handtekið erlenda ferðamenn þegar mikil spenna ríkir á milli þeirra og annarra ríkja. Ferðamennirnir eru svo notaðir til þess að ná fram málamiðlunum.
Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Sjá meira