Dortmund búið að selja Mkhitaryan til Man. Utd Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. júlí 2016 11:47 Henrikh Mkhitaryan spilar í ensku úrvalsdeildinni næsta vetur. vísir/epa
Þýska liðið Borussia Dortmund greinir frá því á heimasíðu sinni að það er búið að selja armenska miðjumanninn Henrikh Mkhitaryan til Manchester United. Samningaviðræður Manchester United og Dortmund hafa staðið yfir í nokkrar vikur en fyrsta tilboð enska liðsins þótti of lágt. Það hefur nú hækkað tilboð sitt verulega þó ekki sé talað um neinar upphæðir. Í yfirlýsingu Dortmund segir að tilboð Manchester United sé svo gott að ekki hafi verið hægt að hafna því þar sem leikmaðurinn á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við þýska liðið. Mkhitaryan var keyptur til Dortmund af Jürgen Klopp árið 2013 frá Shakhtar Donetsk í Úkraínu. Hann hefur síðan þá verið lykilmaður í liði Dortmund og einn af betri fótboltamönnum álfunnar. Þessi 27 ára gamli Armeni skoraði 40 mörk í 136 leikjum í öllum keppnum fyrir Dortmund á þremur tímabilum. Hann var stoðsendingakóngur Bundesligunnar á síðustu leiktíð og einnig leikmaður ársins að mati leikmanna. Mkhitaryan er þriðji leikmaðurinn sem José Mourinho fær til sín í sumar en áður voru mættir miðvörðurinn Eric Bailly frá Villareal og sjálfur Zlatan Ibrahimovic frá Paris Saint-Germain..@HenrikhMkh wechselt zu @ManUtd // Henrikh Mkhitaryan moves to Manchester United. Details to follow. pic.twitter.com/mFxTgZoS3J— Borussia Dortmund (@BVB) July 2, 2016
Enski boltinn Mest lesið Íslenska íþróttafólkið fékk gefins síma og smokka Sport „Ég varð fyrir vonbrigðum með Gylfa“ Íslenski boltinn Þórir fékk gleðifréttir í gær Handbolti Gylfi ekki með Val til Skotlands Fótbolti Uppgjörið: Drita - Breiðablik 1-0 | Evrópusumarið á enda runnið Fótbolti Fagnaði sigri á Ólympíuleikunum komin sjö mánuði á leið Sport Anton Sveinn komst áfram í undanúrslit Sport Áfrýja stigafrádrættinum en ekki leikbanni þjálfarans fyrrverandi Fótbolti Skilur ekkert í skipuleggjendum: „Alveg út í hött“ Sport Þór kaupir Aron frá KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Tindastóll - Þór/KA | Nágrannaslagur fyrir norðan Í beinni: Þróttur - Keflavík | Gestirnir geta rifið sig upp af botninum Argentína tryggði efsta sætið í uppbótartíma Uppgjörið: Drita - Breiðablik 1-0 | Evrópusumarið á enda runnið Fulham kaupir Smith Rowe og skilur Liverpool eitt eftir „Leka inn mörkum hér og þar þannig að þetta verður áhugaverð barátta“ Þór kaupir Aron frá KR KR-ingar féllu þegar þeir léku síðast níu leiki í röð án sigurs Gylfi ekki með Val til Skotlands Selma Sól aftur til Þrándheims „Ég varð fyrir vonbrigðum með Gylfa“ Steve Bruce gæti tekið við gamla starfi Heimis Hallgríms Sjáðu Viðar Örn skora loksins fyrir KA og Finn Tómas bjarga KR í blálokin Áfrýja stigafrádrættinum en ekki leikbanni þjálfarans fyrrverandi Matthías frá keppni næstu átta vikurnar Orri Steinn í bréfaskiptum við framherja sem einnig vill gullskóinn Glódís Perla bætti meistaraskildinum við í ótrúlegt bikarsafn Bayern Grétar Snær rifbeinsbrotinn „Þurfum að fara að spila fyrir merkið“ Áframhaldandi meiðslavandræði KR: Stefán tognaður Uppgjör: KR - KA 2-2 | Finnur Tómas bjargaði stigi fyrir KR á síðustu stundu Heldur kyrru fyrir í Kópavogi Skytturnar kynna Calafiori til leiks Spánverjar bættu við enn einu fótboltagullinu í gær Sóknarmaður á leið í Lambhagann Mikið undir hjá vængbrotnum KR-ingum: „Þýðir ekkert að væla yfir þessu“ Gera bíómynd um deilu Roy Keane og Mick McCarthy fyrir HM 2002 Sjáðu mörkin: Fram rúllaði yfir Val og Víkingur setti fimm Ástbjörn og Gyrðir búnir að semja við KR Pabbi Endrick gat ekki hætt að gráta Sjá meira