Hugo Lloris, markvörður og fyrirliði franska landsliðsins í fótbolta, sagði á blaðamannafundi á Stade de France í dag að sigur Wales á Belgíu í gær hefði ekki verið skýasta dæmið um að minni liðin á EM geta þeim þeim stóru hættuleg. Þannig er saga mótsins einfaldlega búin að vera.
„Það er engin tilvjun að Ísland komst áfram. Ísland hefur spilað vel frá byrjun mótsins og þegar við tölum um liðsheild þá er hún frábær hjá Íslandi þó það sé svo með 2-3 topp leikmenn. Þetta er lið með mikið hjarta mikla samheldni,“ sagði Lloris á blaðamannafundi í dag.
Lloris, sem ver mark Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, hafði ekkert nema góða hluti um Gylfa Þór Sigurðsson að segja. Þeir spiluðu saman í tvö ár hjá Lundúnarliðinu.
„Hann er góður strákur með góð gildi. Mér finnst hann frábær leikmaður. Hann er mikils metinn á Englandi. Hann spilaði frábærlega með Swansea og hélt því uppi. Hann er jafnfættur og skorar mörk,“ sagði Lloris.
Didier Dechamps, þjálfari Frakka, sagði sína menn ekki vanmeta íslenska liðið. Hann tók í sama streng og fyrirliðinn og minnti alla á að strákarnir okkar eru ekki komnir í átta liða úrslitin þökk sé einhverri heppni.
„Við erum vel meðvitaðir um að Ísland er ekki hér út af einhverri heppni. Þeir komust fyrst upp úr riðli og unnu svo England í 16 liða úrslitum. Þeir hafa ekki stolið neinu. Þeir eru komnir þetta langt því þeir eiga það skilið og eru með gæði í liðinu,“ sagði Didier Dechamps.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Fyrirliði Frakklands: "Gylfi er mikils metinn á England“
Tengdar fréttir

Fyrrum þjálfari Kolbeins: „Aldrei séð barn á hans aldri með sömu hæfileika“
Þrándur Sigurðsson er búinn að þjálfa hjá Víkingi í áratugi og er einn af þeim sem gerðu Kolbein Sigþórsson að því sem hann er í dag.

Íslendingapartýið í París í dag hefst klukkan 18
Blaz Roca stígur á svið og spiluð verður íslensk tónlist.

Bara Ragnar og Jón Daði mega fá gult ef spila á sama liði í undanúrslittum
Níu leikmenn Íslands eru á hættusvæði.

Íslendingar komnir á stjá í París | Myndir
París verður svo sannarlega máluð blá næstu tvo daga en Ísland og Frakkland mætast á Stade de France annað kvöld.

Alfreð: Þrír sigrar í viðbót og við vinnum mótið
Framherjinn trúir því varla enn þá að Ísland hafi lagt England í 16 liða úrslitum Evrópumótsins.

Dortmund búið að selja Mkhitaryan til Man. Utd
Armeninn á bara eftir að fara í læknisskoðun hjá enska liðinu.