Fótbolti

Sjötti sigur Krasnodar í síðustu sjö leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnar og félagar í vörn Krasnodar hafa verið duglegir að halda hreinu í undanförnum leikjum.
Ragnar og félagar í vörn Krasnodar hafa verið duglegir að halda hreinu í undanförnum leikjum. vísir/epa
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Krasnodar sem vann 3-0 sigur á Krylya Sovetov í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Fyodor Smolov skoraði öll þrjú mörk Krasnodar sem er í 4. sæti deildarinnar með 53 stig, sex stigum á eftir toppliði CSKA Moskvu þegar tvær umferðir eru eftir.

Ragnar og félagar eiga ekki lengur möguleika á titlinum en geta enn náð 2. sætinu og komist þannig í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Krasnodar hefur spilað virkilega vel að undanförnu, unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum og haldið hreinu í fimm þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×