Ráðherra kærður vegna kaupa á Panamaskjölum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 9. september 2016 21:30 Panamaskjölin koma frá lögmannsstofunni Mossack Fonseca. Vísir/AFP
Litlar líkur eru á að skattamálaráðherra Danmerkur, Karsten Lauritzen, verði dreginn fyrir dóm vegna kaupa á gögnum úr svokölluðum Panama-skjölum. Lögfræðingurinn Poul Gudberg segir danska ríkið brjóta lög með því að kaupa gögn sem aflað hefur verið á ólöglegan hátt og hefur hann kært málið til lögreglunnar. Ráðherrann veitti skattayfirvöldum leyfi til að verja milljónum danskra króna til kaupa á gögnum með upplýsingum um 500 til 600 danska skattgreiðendur til að kanna hvort þeir hefðu gerst sekir um skattsvik í stórum stíl. Jørn Vestergaard, prófessor í refsirétti við Kaupmannahafnarháskóla, er þeirrar skoðunar að ekki sé um refsivert athæfi að ræða. Séu hins vegar upplýsingar sem aflað er með því að brjóta lög notaðar án heimildar sé um refsiverðan verknað að ræða. Prófessorinn segir hefð fyrir því í dönsku réttarkerfi að horfa með skynsemi á allar lagagreinar og út frá því hverju löggjafinn hafi gert ráð fyrir. Í þessu máli sé greinilegt að málið hafi verið vandlega íhugað í ráðuneyti skattamála. Í frétt Politiken segir að um pólítíska ákvörðun hafi verið að ræða sem hafi notið stuðnings breiðs meirihluta á danska þinginu.
Tengdar fréttir Dönsk skattayfirvöld kaupa skattaskjólsupplýsingar um 500 Dani Danski skattamálaráðherrann og skattanefnd danska þingsins hafa gefið skattayfirvöldum grænt ljós á að kaupa gögnin. 7. september 2016 08:12 Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Sjá meira
Dönsk skattayfirvöld kaupa skattaskjólsupplýsingar um 500 Dani Danski skattamálaráðherrann og skattanefnd danska þingsins hafa gefið skattayfirvöldum grænt ljós á að kaupa gögnin. 7. september 2016 08:12