Bændur voru tilbúnir að selja hefði rétt verð fengist Jóhann Óli Eiðsson skrifar 3. nóvember 2016 07:00 Kúabúum hefur fækkað um tvo þriðju frá 1986. vísir/eyþór
Ljóst er að nokkrir bændur voru tilbúnir til að bregða búi fyrir rétt verð. Þetta segir formaður Landssambands kúabænda, LK. Síðasti tilboðsmarkaður með greiðslumark mjólkur fór fram í gær en hann var jafnframt sá stærsti frá upphafi. Alls voru 2,7 milljónir lítra seldar en kaupverðið var 555 milljónir króna. Þá höfðu 69 bændur hins vegar boðið fram um 5,9 milljónir lítra til sölu. Alls eru rúmlega 600 kúabú á landinu. „Ég túlka þetta þannig að talsvert margir hafi verið tilbúnir til að selja ef rétt verð hefði fengist. Í sumum tilfellum fannst ekki rétt verð og þeir bændur halda því áfram búskap,“ segir Arnar Árnason, formaður LK. Þetta var í síðasta skipti sem bændum gafst kostur á að selja greiðslumark á uppboðsmarkaði. Með breytingum á búvörulögum sem taka gildi um áramótin fara skipti á kvóta fram með innlausnarskyldu ríkisins. Þá verður verðið á mjólkurlítranum í kringum 140 krónur en í fyrradag var meðalverðið á lítranum 205 krónur. „Árið 2019 munu bændur kjósa um það hvort haldið verði áfram með framleiðslustýringu á mjólk. Einhverjir sáu sér leik á borði að selja núna á markaðsverði og hætta að búa í stað þess að búa í tvö, þrjú ár í viðbót,“ segir Arnar. „Þetta hefur verið þróunin síðan 1986. Kúabændum hefur fækkað um tvo þriðju síðan þá. Áframhaldandi samþjöppun er fyrirséð.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Ríkisstjórnin sprungin Innlent Kraumar í kennurum vegna ummæla Einars Innlent „Þetta er eitthvað sem fylgir manni út ævina“ Innlent Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Innlent Blöskrar ákvörðun Bjarna og segja hana heigulshátt Innlent Ráðherrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum Innlent „Framkoma Bjarna kom svolítið flatt upp á mann“ Innlent Leggur fram tillögu um þingrof og kosningar í nóvember Innlent Viðbrögð landsmanna: „Er hægt að kaupa flugelda?“ Innlent Veitingahús mega vænta kæru eftir eftirlitsferðir lögreglu Innlent Fleiri fréttir Bjarni hafi ákveðið „að henda inn handklæðinu” Vænlegast fyrir alla að þjóðin fái að kjósa Framsókn hringi nú í allar auglýsingastofurnar Framsóknarflokkurinn fundar í kvöld Brotthvarf Katrínar hafi verið dauðadómur samstarfsins Viðbrögð VG við stjórnarslitum og stjórnarandstaða í kosningagír Viðbrögð landsmanna: „Er hægt að kaupa flugelda?“ „Mér er létt að við séum búin að taka ákvörðun um að slíta” Blöskrar ákvörðun Bjarna og segja hana heigulshátt „Loksins tækifæri fyrir þjóðina“ Taldi þingrof og kosningar ekki vera næst á dagskrá „Framkoma Bjarna kom svolítið flatt upp á mann“ Leggur fram tillögu um þingrof og kosningar í nóvember Ríkisstjórnin sprungin Bændur eru skilvísir með greiðslu lána sinna Kraumar í kennurum vegna ummæla Einars Hægt að hafa vinnufrið „ef engin er vinnan“ Kennarar æfir út í borgarstjóra, ríkisstjórnin og fjármál ungra bænda Þurfa að læra að lifa með takmörkunum vegna jarðhræringanna „Þetta er eitthvað sem fylgir manni út ævina“ Ríkisstjórnarsamstarfið, verkalýðsmál og opnun Grindavíkur Nýja skipið mun betra Ráðherrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum Veitingahús mega vænta kæru eftir eftirlitsferðir lögreglu Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans Hanna Rún og Nikita tryggðu Íslandi brons á Evrópumeistaramótinu Mótmæltu lausn manns sem var dæmdur fyrir manndráp í fyrra Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Meðalaldur bænda er 66 ár - Tryggja þarf nýliðun Vonast til að ná árangri áður en aðgerðir hefjast Sjá meira