Innlent

Nýr bæjarstjóri Grindavíkurbæjar ráðinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fannar Jónasson
Fannar Jónasson Vefur Grindavíkurbæjar
Gengið var frá ráðningu nýs bæjarstjóra Grindavíkurbæjar á bæjarstjórnarfundi kvöld. Nýr bæjarstjóri er Fannar Jónasson og mun hann gegna stöðunni út núverandi kjörtímabil, til maí 2018. Þetta kemur fram á vef Grindavíkurbæjar.

Fannar er viðskiptafræðingur að mennt og einnig með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur 20 ára reynslu af sveitarstjórnarmálum, er Rangæingur að ætt og uppruna þar sem hann sat í sveitastjórn, bæði sem oddviti og síðar bæði í nefndum og ráðum sveitarfélaganna á Suðurlandi.

Þá starfaði Fannar einnig sem útibússtjóri hjá Arionbanka. Undanfarin ár hefur hann starfað sem fjármálastjóri hjá Fálkanum.

Fannar hefur störf á nýju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×