Fótbolti

Stelpurnar í Barcelona skora líka flott mörk | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Olga Garcia er ein af stjörnum Barcelona-liðsins.
Olga Garcia er ein af stjörnum Barcelona-liðsins. Vísir/Getty
Barcelona er eitt besta fótboltalið heims og hefur verið það lengi en forráðamenn félagsins hafa líka mikinn metnað fyrir því að kvennaliðið komist í hóp þeirra bestu líka.

Börsungar eru stoltir af sínum leikmönnum hvort sem það eru karlar eða konur og fólk þar á bæ er duglegt að auglýsa flott tilþrif sinna leikmanna á netinu.

Barcelona hefur unnið markvisst að uppgangi kvennafótboltans hjá sér síðustu ár og stelpurnar í Barca hafa unnið spænska titilinn fjórum sinnum á síðustu fimm árum.

Barcelona er nú í harðri baráttu við Atlético Madrid á toppi deildarinnar en Atlético hefur eins stigs forystu eftir fjórtán umferðir.

Barcelona nýtir sér samfélagsmiðlana vel og þar má meðal annars sjá reglulega flottustu mörkin sem eru skoruð í leikjum yngri flokka félagsins.

Stelpurnar í Barcelona skora líka mjög flott mörk og þær hafa oft komið í hóp fimm flottustu markanna en nú í lok ársins hafa Börsungar útbúið sér myndband með flottustu mörkum stelpnanna í Barcelona á árinu 2016.

Hér fyrir neðan má sjá fimm flottustu mörkin sem stelpurnar í Barcelona skoruðu á árinu 2016 og þar fara frábær mörk þar sem útsjónarsemi leikmanna og tækni er eins og það gerist best í boltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×