Innlent

Fór inn og fékk sér að borða á meðan heimilisfólkið svaf

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Konan var handtekin í morgun.
Konan var handtekin í morgun. vísir/vilhelm
Lögreglunni barst á sjötta tímanum í morgun tilkynning um konu sem farið hafði inn í ólæst íbúðarhús í miðborginni og fengið sér að borða á meðan heimilisfólk svaf værum svefni.

Konan, sem var í annarlegu ástandi, var handtekin og látin sofa úr sér vímuna í fangaklefa, en í fórum hennar fundust fíkniefni, að því er segir í tilkynningu frá lögregu.

Þá var tilkynnt um innbrot á heimili í neðra Breiðholti um klukkan átta í morgun, og er málið í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×