Vinsælasti áskorandi forsetans handtekinn Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 16. febrúar 2016 07:00 Stuðningsmenn Besigye safnast saman. vísir/epa
Lögreglan í Kampala, höfuðborg Úganda, handtók í gær forsetaframbjóðandann Kizza Besigye. Frambjóðandinn var handtekinn á leið á kosningaviðburð í höfuðborginni og vakti það mikla reiði stuðningsmanna hans. Út brutust mikil mótmæli og brást lögregla við með því að kasta táragassprengjum inn í skarann. Besigye býður sig fram gegn sitjandi forseta, Yoweri Musaveni, ásamt fimm öðrum. Besigye mælist með mest fylgi stjórnarandstæðinga, rúm þrjátíu prósent. Musaveni mælist hins vegar með um fimmtíu prósenta fylgi, en hann hefur setið á stóli forseta frá árinu 1986 og sækist nú eftir sínu fimmta kjörtímabili. Einnig verður kosið til þings. Á þinginu er flokkur Musaveni, NRM, nú með 259 sæti af þeim 372 sem eru í boði. Flokkur Besigye, FDC, er með 36 sæti.Kizza Besigye forsetaframbjóðandi.Nordicphotos/AFPTalsmaður FDC, Semujju Nganda, sagði við fréttastofu Daily Monitor í Úganda að Musaveni hafi lýst því yfir að stjórnarandstæðingar mættu ekki standa í neins konar kosningabaráttu innan höfuðborgarinnar og þess vegna hafi Besigye verið handtekinn. „Lögreglan lokaði á okkur. Nú getum við ekkert annað gert en að tala við kjósendur á götum úti,“ sagði Nganda, en flokkurinn hafði áformað að halda kosningaviðburð á fótboltavelli í borginni. Besigye var ekki lengi í haldi lögreglu í gær og þegar honum var sleppt hvatti hann stuðningsmenn sína til að halda friðinn. „Ég hvet stuðningsmenn mína til að halda ró sinni. Verum ákveðin og fylgjum lögunum,“ sagði Besigye er honum var sleppt. „Ég mun gera mitt besta til að komast aftur á staðinn og ávarpa gesti allra skipulagðra viðburða.“ Forsætisráðherra landsins, Frank Tumwebaze, varði handtökuna í gær. „Af hverju ætti að halda kosningaviðburði í viðskiptahverfi Kampala? Besigye var að reyna að vekja á sér athygli því hann veit að hann mun tapa […] Það er skylda lögreglunnar að verna alla borgara,“ sagði Tumwebaze í viðtali við úgandska dagblaðið New Vision.
Mest lesið Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Erlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent „Hann hverfur ofan í jörðina“ Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Innlent Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Fleiri fréttir Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Sjá meira