Skoðun

Rótarýdagurinn, laugardaginn 27. febrúar 2016

Sigríður K. Ingvarsdóttir og Kristján Pétur Guðnason skrifar
Rótarýdagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt, laugardaginn 27. febrúar n.k. til að vekja athygli á því fyrir hvað Rótarýhreyfingin stendur og er þetta í annað sinn sem Rótarýdagurinn er haldinn hér á landi.

Í ár ákváðu Rótarýklúbbarnir Reykjavík Breiðholt og Reykjavík Árbær að vera með sameiginlega hátíðardagskrá kl. 14:00-16:00 í Fylkisheimilinu í Árbæ tengt Rótarýdeginum. Allir eru velkomnir til að fræðast um Rótarýstarfið og boðið verður upp á fræðslu um rótarýstarfið, Elliðaárdalinn, ungmennastarf Rótarý og tónlist verður flutt.

Klúbbfélagar starfa eftir hugsjón Rótarý þ.e. að stuðla að heiðarlegum samskiptum, vera samferðafólki til aðstoðar og að vera fulltrúi sinnar starfsgreinar. Gestafyrirlesarar halda erindi um margvísleg málefni sem veitir fróðlega innsýn í þjóðfélagsmál, menningu, listir og störf og starfsgreinar. Einnig fara klúbbarnir í heimsóknir í fyrirtæki, stofnanir og í aðra rótarýklúbba og njóta þá leiðsagnar og kynningar gestgjafanna.

Í öllu starfi Rótarýhreyfingarinnar hefur reynst farsælt að karlar og konur komi jafnt að stjórnun og mótun starfsins. Hreyfingin eru ein fremstu mannúðar- og þjónustusamtök í heimi. Kjörorð Rótarý er að styðja við fjölmörg samfélagsverkefni á því svæði sem klúbbarnir starfa auk þess sem unnið er að mannúðarverkefnum um allan heim. Hér má nefna útrýmingu lömunarveikinnar (polio), forvarnar- og friðarstarf, heilbrigði mæðra og barna, grunnmenntunar og almennt læsi fólks.

Kristján Pétur Guðnason, forseti Rótarýklúbbs Reykjavík Árbær
Árlega eru styrkir veittir efnilegu tónlistarfólk. Þá hefur ungt fólk notið styrkja til háskólanáms í útlöndum, styrkir eru veittir til eflingar friðar í heiminum og starf sumarbúða og nemaskipti eiga sér langa sögu. Einn af Rótarýklúbbunum hér á landi er Rótaractklúbburinn Geysir sem eru samtök ungs fólks. Klúbburinn vinnur mikið með skiptinemum, umhverfisverkefnum, blóðgjafar og margt fleira.

Rótarýklúbburinn Reykjavík Breiðholt hefur stutt við fjölmörg verkefni tengt Breiðholtinu. Verðlaun hafa verið veitt í yfir 20 ár útskriftarnemendum í Fjölbraut í Breiðholti sem skólinn telur hafa sýnt lofsverða ástundun og framfarir í námi og félagslífi skólans. Í ár fór klúbburinn á stað með samstarfsverkefni við FB þar sem starfsmaður skólans heldur erindi á klúbbfundi og á móti deilir klúbbfélagi reynslu sinni úr atvinnulífinu í kennslutíma hjá þeim. Klúbburinn hefur ennfremur komið að stuðningi við Skógarbæ, Gerðubergskórinn, látið gera minnismerki um fyrsta kirkjustaðinn í Breiðholti, unnið að gróðursetningu í Heiðmörk auk margra annarra samfélagsverkefna. 

Með áþekkum hætti hefur Rótarúklúbburinn Reykjavik Árbær unnið að ýmsum verkefnum í sínu borgarhverfi. Fyrir tilstilli klúbbsins var reistur vatnspóstur við göngustíginn neðan við Árbæjarkirkju sem kemur þeim vel sem leið eiga um Elliðaárdalinn. Á hverju vori taka félagar til hendinni og hreinsa nærumhverfi kirkjunnar af rusli. Um árabil stóð klúbburinn að skógrækt í Hvammsvík í Hvalfirði. 

Nokkrir skiptinemar hafa dvalið hér á landi á vegum beggja klúbbanna og á sama hátt hafa íslensk ungmenni fengið styrk frá klúbbunum til dvalar erlendis þ.e. sem skiptinemar, í sumarbúðum og til frekara framhaldsnáms. Auk þessa hafa báðir klúbbarnir styrkt verkefnið „útrýmum lömunarveiki“ og gerð vatnsbrunna á Indlandi og útskriftarnemum úr hverfisskólum beggja hverfanna eru veittar bókaviðurkenningar.

Rótarýhreyfingin stuðlar að friði og skilningi á meðal manna og þjóða án tillits til stjórnmála, kynþátta, trúarbragða eða þjóðernis. Kjörorð Rótarýdagsins í ár er að „efla fjölþjóðasamfélagið“. Þjónustuhugsjónin er grunnur hreyfingarinnar og með það að leiðarljósi leggjum við okkar að mörkum til að auka alþjóðlegan skilning á gildi friðar, velvildar og vinarhugs öllum til góðs, hvar sem er í heiminum í félagsskap manna af öllum starfsgreinum. 

Að vera bakhjarl góðra verka er gefandi og gerir okkur að betri manneskjum. “Verum veröld gefandi” hljóða einkunnarorð alheimsforseta í ár. Vonandi vekur sú hugsun áhuga einhverra til þátttöku. Rótarýhreyfingin fagnar þeim sem vilja leggja góðum málefnum lið. Heimasíðan Rótarý er www.rotary.is og þar undir eru nöfn og upplýsingar um alla Rótarýklúbba á Íslandi.




Skoðun

Sjá meira


×