Enski boltinn

Liverpool vill framlengja við Klopp

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Er Klopp til í að gera lengri samning?
Er Klopp til í að gera lengri samning? vísir/getty
Þó svo Jürgen Klopp hafi aðeins komið til Liverpool í október á síðasta ári þá er eigendum félagsins mikið í mun um að gera við hann nýjan samning.

Klopp blés miklu lífi í lið Liverpool á fyrstu mánuðum liðsins og stuðningsmenn félagsins sá fram á bjartari tíma með blóm í haga með hann við stjórnvölinn.

Þjóðverjinn skrifaði upprunalega undir samning við félagið til ársins 2018 en það þykir forráðamönnum félagsins nú vera of stutt.

Félagið vill nú að Klopp skrifi undir nýjan og lengri samning og verður eflaust eitthvað fundað um það næstu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×