Fótbolti

Roma vann uppgjörið um annað sætið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/getty
Roma er nú með þriggja stiga forskot í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir flottan heimasigur, 1-0, á AC Milan en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn.

Það var Radja Nainggolan sem skoraði eina mark leiksins á 62. mínútu eftir sendingu frá Kostas Manolas.

Roma er nú með 35 stig í öðru sætinu en Juventus er á toppnum með 39. Milan er í þriðja sæti með 32 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×